One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Vill jafnari stöðu barna sem búa við fátækt:„Það þarf aðgerðir strax“

Vill jafnari stöðu barna sem búa við fátækt:„Það þarf aðgerðir strax“

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 2, 2026, 9:47 PM
Vill jafnari stöðu barna sem búa við fátækt:„Það þarf aðgerðir strax“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 2, 2026, 9:47 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Varaformaður Samtaka gegn fátækt á Íslandi kallar eftir skjótum aðgerðum stjórnvalda þegar kemur að fátækt barna. Hún segir margt gott í nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda. 10. 500 börn búa á heimilum undir lágtekjumörkum Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt fram fyrstu heildstæðu stefnuna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna. Stefnan byggir meðal annars á nýrri skýrslu á vegum Háskóla Íslands, þar sem fram kemur að um 10. 500 hundruð börn á Íslandi búa á heimilum sem eru undir lágtekjumörkum. Inga Sæland, barnamálaráðherra, sagði á málþingi í síðustu viku að nauðsynlegt væri að ráðast í þjóðarátak gegn fátækt barna á Íslandi.

Tuttugu og einn milljarður verði settur í barnabótakerfið á næsta ári. „Það er margt mjög gott og flott í þessari stefnu, eins og að skoða eigi barnabótakerfið, sem er orðið mjög gamalt, þannig að ég fagna því og finnst frábært að það eigi að skoða það,“ segir Hildur Oddsdóttir, varaformaður EAPN Ísland, Samtaka gegn fátækt. „En það sem ég myndi vilja sjá er að það þurfi að gerast aðgerðir strax. Það þarf að jafna út þetta hlutfall hjá öllum börnum, svo þau eigi jöfn tækifæri. “ Rætt var við Hildi í Kastljósþætti kvöldsins. Ójöfnuðurinn áberandi eftir hverfum Hildur nefnir í því samhengi fund sem hún sat á föstudag með tveimur starfsmönnum grunnskóla yngsta barns síns. „Og þar kom fram að í…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS